Félags- og skólaþjónusta

Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Um Félags- og skólaþjónustuna

Byggðasamlag um félagsþjónustu í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu tók til starfa árið 2003. Að byggðasamlaginu standa Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur, en sá síðastnefndi gekk að fullu í samlagið um áramótin 2005-2006.

Stofnsamþykktum byggðasamlagsins var breytt á aukaaðalfundi í ágúst 2013. Um áramótin 2013 – 2014 bættist  lögbundin sérfræðiþjónusta sveitarfélaga við leik- og grunnskóla við starfsemina í kjölfar niðurlagningar Skólaskrifstofu Suðurlands sem haft hafði sérfræðiþjónustu á svæðinu með höndum frá árinu 1996.

Byggðasamlagið skiptist nú í tvær sjálfstæðar deildir undir einni stjórn, félagsþjónustudeild (sjá hnapp hér til hliðar) og skólaþjónustudeild (sjá hnapp hér til hliðar) og heitir Félags – og skólaþjónustu Rangárvalla – og Vestur-Skaftafellssýslu bs.

Í stjórn byggðasamlagsins sitja 5 fulltrúar, einn frá hverju sveitarfélagi sem aðild á að því.

Félags- og skólaþjónustan er til húsa að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu, sími 487-8125.

Nánari upplýsingar um hvora deild fyrir sig ef ýtt er á hnappa hér til hliðar og að ofan.